Viltu gerast meðlimur?

Sentu okkur skilaboð á islmynsam (at) gmail (punktur) com ef þú hefur áhuga á að gerast meðlimur, ef þú hefur frekari spurningar eða vilt bara styrkja okkur.

Meðlimir ÍMS njóta ýmissa fríðinda:

Endurgjöf frá fagfólki: Meðlimum er boðið að senda inn handrit eða skissur og fá uppbyggilega gagnrýni frá fagfólki í myndasögugerð um verk sín.

Vinnustofur og fræðsluskot: Fræðsluskot hafa legið í dvala hjá ÍMS í nokkurn tíma en nú virðist aðeins farið að lifna yfir hlutum. Meðlimum býðst gjaldfrjálst að mæta á fræðsluskot á vegum faglistafólks og læra nýjar aðferðir við myndasögugerð.

Afslættir hjá ýmsum verslunum og þjónustum: Meðlimir sem sýna félagsskírteini í A4, Litum og föndri, Pixel prentþjónustu og Slippfélaginu fá 10-30% afslátt eftir stað og vöru (15% afslátt að meðaltali).

Meðlimaskrá ÍMS: Allir gildir meðlimir ÍMS fá að skrá sig í meðlimaskrá okkar hér á heimasíðu okkar. Skráin inniheldur nafn, sýnishorn af list þinni, stuttri kynningu og hlekk á portfolio-síðu.

Meðlimagjald er 5.000kr. og er rukkað einu sinni á ári.

(c) Íslenska myndasögusamfélagið, 2026