Myndasögusultur
ÍMS heldur svokallaðar „myndasögusultur“ tvisvar í mánuði sem eru öllum opnar. Þetta eru óformlegir hittingar þar sem fólk spjallar saman, kynnir verk sem þau eru að vinna að, fær gagnrýni (ef um er beðið), eða teiknar bara í rólegheitunum.
Sulturnar eru haldnar tvisvar í mánuði uppi á fjórðu hæð Loft Hostel við Bankastræti 7 í Reykjavík, miðvikudag fyrir miðjum mánuði og síðasta þriðjudag hvers mánaðar. Mæting er milli kl. 17:00 og 20:00.
ATH!: Algengt er að gestir kaupi sé áfenga drykki til að njóta á meðan hittingnum stendur en engum er skyldugt að drekka sem ekki vill. Nóg er til að óáfengum veitingum.
Næsta sultur verða haldnar: miðvikudag 11. febrúar og þriðjudag 24. febrúar, 17:00-20:00.
|