|
|
Íslenska myndasögusamfélagið
Íslenska myndasögusamfélagið (ÍMS) var stofnað árið 2019 til að styrkja stöðu íslenskra myndasagna og annarra grafískra skáldverka, bæði sem listform og sem iðngrein. Meðlimir félagsins eru myndlistafólk, rithöfundar, gagnrýnendur, lesendur og fræðifólk um myndasögur. Félagið styður íslenska myndasöguhöfunda með vinnustofum, mánaðarlegum hittingum og öðrum menningarlegum viðburðum fyrir fólk á öllum aldri.
Stefna okkar varðandi hver eru velkomin
ÍMS var stofnað af hinsegin konum (og einum gagnkynhneigðum gaur) og leggjum við ríka áherslu á að hinsegin fólk upplifi sig velkomið. ÍMS býður fólk velkomið hvaðan sem er af LGBT+ rófinu.
Fólk með fötlun er einnig velkomið, hvort sem um líkamlega fötlun eða andlega fötlun er að ræða. Við reynum eftir fremsta megni að halda viðburði okkar á vettvöngum sem eru bæði aðgengilegir og þægilegir til dvalar. Það þýðir hjólastólarampa, lág-stillt ljós og tónlist og veitingar á viðráðanlegu verði.
Útlendingar og innflytjendur eru velkomnir. Meðlimir ÍMS eru margir af erlendur bergi brotnir eða eiga sér vinir og fjölskyldur af útlenskum ættum. Íslenskar myndasögur eiga að endurspegla íslenskri menningu og íslensk menning hefur ávallt verið fjölþjóðleg frá því landið var numið af Írum, Dönum, Norðmönnum, Svíum, Þjóðverjum, Frökkum, Rússum, Spánverjum, Bretum, Pólverjum, Litháum, Nígeríubúum, Gömbum, Kongóbúum, Filipseyjabúum, Víetnömum, Kínverjum, Thailendingum eða Bandaríkjamönnum. Þessi eyja tilheyrir fuglunum. Við hin búum hérna bara.
Stefna okkar varðandi hver eru EKKI velkomin
ÍMS eru samtök sem reyna að bjóða eins marga velkomna og unnt er sem þýðir að við verðum einnig að meina einhverjum inngöngu. Í stuttu máli eru það: Fasistar, hrekkjusvín, þjóðernissinnar, hommafælur, transfælur, útlendingafælur, hrellar og ritþjófar.
Stefna okkar varðandi gervilist
ÍMS hafa ekki borist nein góð rök fyrir svokallaðri „gervigreindarlist“ en nóg af rökum gegn henni: Að mati ÍMS er þróun gervilistar siðlaus, skaðleg náttúrunni, ófrumleg og beinlínis heftir þroska listafólks. ÍMS er þvert á móti notkun gervigreindar við listsköpun og leyfir hana ekki meðal meðlima sinna.
|