Fréttabréf september 2026

Komið sæl!

Endilega hafið samband ef þið hafið tilkynningar sem þið viljið deila með meðlimum félagsins, t.d. nýútgefnar myndasögur, nýjar vefmyndasögur eða ef þið eruð að leita að samstarfsfélögum að gerð nýrrar myndasögu.

Einnig minnum við á að meðlimum býðst að senda inn handrit og myndlist og fá ráðgjöf og rýni frá okkur. Við sinnum einni sendingu á mánuði og afgreiðum sendingar í þeirri röð sem þær berast okkur.

Myndasögusultur 16. og 29. september

Að vanda eru myndasögusultur haldnar á Loft Hostel þennan mánuð. Fyrri hittingur verður haldinn miðvikudaginn 16. september milli 19:00 og 22:00 og seinni hittingurinn 29. september milli 17:00 og 20:00. Við hvetjum höfunda sem eru að undirbúa umsóknir fyrir listamannalaun sérstaklega til að kíkja við og fá gagnrýni á umsóknum sínum.

Kíkið við og deilið því sem þið eruð að vinna að og fáið uppbyggilega gagnrýni. Eða komið bara að spjalla og krota eins og vanalega! Við hlökkum til að sjá ykkur.

Myndasögulistahátíðin á Siglufirði

Myndasögulistahátíð Siglufjarðar snýr aftur í þriðja sinn og stendur yfir 11.-13. september. Þetta er alltaf skemmtilegur viðburður fyrir listaunnendur og hvetjum við alla til að mæta og hjálpa okkur að fagna myndasögulistforminu á Íslandi.

Frekari upplýsingar má nálgast á heimasíðu hátíðarinnar: https://comicsfestival.is/

Við vonumst til að sjá ykkur þar.

Umsóknarfrestur að renna út fyrir listamannalaun

Umsóknarfrestur fyrir listamannalaun rennur út 1. október. ÍMS vill styðja myndasöguhöfunda í gegnum umsóknarferlið og býður ykkur að kíkja á sulturnar okkar 16. og 29. september og fá gagnrýni á umsóknareyðublöðin ykkar. Við hvetjum alla til að sækja um því þótt við fáum ekki laun þetta ár, þá getum við amk. sýnt fram á að eftirspurnin sé til staðar.

Kastljós

Í hverjum mánuði viljum við taka fyrir höfund í félaginu og kynna fyrir lesendum. Listahöfundur mánaðarins er…

Bjarni Pálsson

Hver ert þú?

Bjarni Pálsson heiti ég og ég er 21 árs gamall myndasöguhöfundur. Ég bý til sögur um hversdagslegu ofurhetjuna Jólaljósamanninn og stefni á að útfæra Grettissögu sem myndasöguseríu. Ég hef þegar útfært tvo kafla úr henni. Einnig hef ég gert stuttar sögur um heimsendi, heimspekinga, heimsmál og fleira.

Hvað hefurðu verið að semja myndasögur lengi?

Ég hef skrifað og teiknað sögurnar mínar sjálfur frá sex eða sjö ára aldri. Ég fann upp á Jólaljósamanninum þegar ég var þrettán ára og varð þá helteknari en áður af því að búa til sögur, því mér fannst hann vera besta sköpunarverkið mitt. Ég varð metnaðarfyllri í sagnagerðinni og fann að ég gat ekki teiknað sjónarhornin og stellingarnar sem sögurnar kröfðust. Ég byrjaði að æfa undirstöðuatriði teikningar af miklum krafti, en ég hafði ekki pælt mikið í þeim áður.

Áttu þér uppáhaldshöfunda?

André Franquin hafði mikil áhrif á teiknistílinn minn. Scott McCloud opnaði augun mín fyrir myndasöguforminu og helstu aðferðum formsins. Ég tel marga höfunda vera góða en veit ekki í hvaða gæðaröð ég á að raða þeim án mikilla málalenginga, og ég les þær bækur sem ég kemst í án þess að pæla mikið í höfundum.

Hver myndirðu segja að væri þín sterkasta hlið í myndasögum?

Ég tel mig hafa gott innsæi í hugmyndavinnu og sagnagerð. Ég fæ margar hugmyndir með því að dagdreyma og hlusta á tónlist og ég hugsa oft um hvernig myndasögur mér finnst vanta frekar en að herma eftir vinsælu efni sem er þegar til. Mér hefur einnig verið hrósað fyrir litaval, myndbyggingu og líflegar persónur. Pabbi minn er þýðandi og aðstoðar mig við textaskrif, sem gerir textann minn kjarnyrtari en hjá sumum öðrum höfundum.

Minn helsti veikleiki er að eiga erfitt með að svara spurningum í stuttu máli.

Hvað viltu læra að gera næst?

Ég útskrifaðist úr Myndlistaskóla Reykjavíkur í vor og er að venjast því að vera sjálfstæður teiknari. Ég tel veikleika margra listamanna vera markaðssetning og viðskiptavit og mig vantar sjálfan sárlega reynslu á þessum sviðum. Fyrir mér snýst listin um að gefa öðrum eitthvað sem veitir innblástur, þannig að fjöldi lesenda og viðurkenning á verkum mínum skiptir mig máli. Markmið mitt um þessar mundir er að gefa út mína eigin myndasögubók. Hún verður um Drangeyjarsund Grettis sterka.

Hvers konar myndasögur myndirðu vilja sjá frá íslenskum höfundum?

Ég væri til í að sjá sögur sem höfða til eldri kynslóða og fólks sem er ekki inni í myndasögum. Við erum öll nördar að einhverju leyti og búum oft til sögur fyrir aðra nörda. Kannski væri gott að fá fólk sem les ekki myndasögur til að búa til myndasögur og sjá hvort það færi ótroðnar slóðir. Það er líka alltaf hollt fyrir okkur að reyna að fjalla um eitthvað utan þægindarammans. Myndasögur geta verið fullorðinslegar, eins og við erum öll sammála um, en við skulum alltaf vera meðvituð um hvort það sem við búum til henti fullorðnum, unglingum og/eða börnum og hvort við séum að skilja einhverja markhópa útundan.

Hvar getur fólk fundið myndasögurnar þínar?

Á Jolaljosamadurinn.com er hægt að lesa nokkrar sögur eftir mig ókeypis. Ég hef verið með í nokkrum heftum eins og Ókeipiss, Fjarlægðin gerir fjöllin blá (Siglufjarðarheftið 2025) og Myndarsagna-heftunum Meindarsögur, Myndarsögur í skóinn og Myndarsögur á ferð. Instagrammið mitt er @Jolaljos_comics. Takk fyrir mig!

Fréttabréf Ágúst 2026

Komið sæl og gleðilegan sólmyrkva!

Endilega hafið samband ef þið hafið tilkynningar sem þið viljið deila með meðlimum félagsins, t.d. nýútgefnar myndasögur, nýjar vefmyndasögur eða ef þið eruð að leita að samstarfsfélögum að gerð nýrrar myndasögu.

Einnig minnum við á að meðlimum býðst að senda inn handrit og myndlist og fá ráðgjöf og rýni frá okkur. Við sinnum einni sendingu á mánuði og afgreiðum sendingar í þeirri röð sem þær berast okkur.

Myndasögusultur 19. og 25. ágúst

Að vanda eru myndasögusultur haldnar á Loft Hostel þennan mánuð. Við ákváðum að fresta miðmánaðarfundi um eina viku vegna sólmyrkvans þannig að fyrri hittingur verður haldinn 19. ágúst milli 19:00 og 22:00 og seinni hittingurinn 25. ágúst milli 17:00 og 20:00.

Kíkið við og deilið því sem þið eruð að vinna að og fáið uppbyggilega gagnrýni. Eða komið bara að spjalla og krota eins og vanalega! Við hlökkum til að sjá ykkur.

Myndasöguútgáfusöfnun á Karolina Fund

Kris Halla Helga stendur fyrir fjársöfnun fyrir útgáfu á myndasögunni sinni Skynsegin einhverfa á fjáröflunarsíðunni Karolina Fund. Í háns orðum:

„Skynsegin einhverfa er myndasaga sem fræðir um einhverfu og inniheldur einnig mína eigin sögu um að fá greiningu og baráttu við að fá endurhæfingu til að vera partur af vinnumarkaðinum.

Lok bókarinnar inniheldur gagnlegar upplýsingar líkt og bækur og myndbönd um einhverfu.

Skynsegin einhverfa er búið að vera ástríðu verkefni fyrir mig síðan ég gerði fyrstu opnuna til að sýna á Marglita Mars árið 2024 og loks hef ég lokið við gerð myndasöguna fyrir lokaverkefni mitt við Myndlistaskóla Reykjavíkur 2026."

Bókin hefur nú þegar náð takmarki sínu en enn er nægur tími til að heita á verkefnið og tryggja sér eintak. Síðasti séns rennur út um miðnætti 9. september.

Hér er hlekkur á söfnunarsíðuna.

Ný Manndýrahóps-bók nú fáanleg

I.R. Kjartansson kynnir Prinsinn frá Smáríu, þriðja heftið í Manndýrahóps-seríunni. Bókin verður fáanleg á Myndasögulistahátíð Siglufjarðar 12. september en einnig má panta eintök beint frá Inga, t.d. Gegnum Facebook eða Instagram. Að lokum er von á bókinni í Nexus Glæsibæ um næstu mánaðamót.

Opið fyrir listamannalaun

Það er opið fyrir umsóknir fyrir listamannalaun! Allir höfundar eru hvattir til að sækja um fyrir 1. Október. Gangi okkur öllum vel.

Kastljós

Í hverjum mánuði viljum við taka fyrir höfund í félaginu og kynna fyrir lesendum. Listahöfundur mánaðarins er…

Sara

Hver ert þú?

Hæhæ, ég heiti Sara. Ég er nokkurn vegin bara nýbyrjuð að gera myndasögur. Ég geri stuttar einnar-blaðsíðu sögur sem tengjast eigin upplifunum. Ég hef alltaf haft áhuga á myndlist og myndasögum, en hef mjög lengi átt erfitt með að vinna í því sjálf.

Hvað hefurðu verið að semja myndasögur lengi?

Rúmlega ár ef ég man rétt.

Áttu þér uppáhaldshöfunda?

Ég á held ég ekki neinn sérstakan uppáhalds, ég hoppa mjög mikið úr einu í annað. Les voða lítið af löngum sögum, leita mest í stuttar grínsögur, webcomics og tilfinningaþrungnar stuttsögur.

Hver myndirðu segja að væri þín sterkasta hlið í myndasögum?

Er frekar stolt af letrun sem ég geri handvirkt í sögunum mínum.

Hvað viltu læra að gera næst?

Ég þarf að æfa mig meira í litum.

Hverskonar myndasögur myndirðu vilja sjá frá íslenskum höfundum?

Ég er alltaf til í að sjá fleiri stuttsögur. Það væri líka gaman ef það væri til staður/síða þar sem þeim er safnað saman þannig að það sé auðveldara að nálgast þær.

Hvar getur fólk fundið myndasögurnar þínar?

https://linktr.ee/RegularSara

Fréttabréf Júlí 2026

Komið sæl!

Endilega hafið samband ef þið hafið tilkynningar sem þið viljið deila með meðlimum félagsins, t.d. nýútgefnar myndasögur, nýjar vefmyndasögur eða ef þið eruð að leita að samstarfsfélögum að gerð nýrrar myndasögu.

Einnig minnum við á að meðlimum býðst að senda inn handrit og myndlist og fá ráðgjöf og rýni frá okkur. Við sinnum einni sendingu á mánuði og afgreiðum sendingar í þeirri röð sem þær berast okkur.

Myndasögusultur 15. og 28. júlí

Að vanda eru myndasögusultur haldnar á Loft Hostel 15. og 28. júlí næstkomandi. Hittingurinn þann 15. Júlí verður haldinn milli 19:00 og 22:00 og hittingurinn 28. júlí verður milli 17:00 og 20:00. Við vonumst til að sjá fleiri gesti með því að bjóða smá fjölbreytni í mætingatímum.

Kíkið við og deilið því sem þið eruð að vinna að og fáið uppbyggilega gagnrýni. Eða komið bara að spjalla og krota eins og vanalega! Við hlökkum til að sjá ykkur.

Myndasöguútgáfuhóf í Nexus 11. júlí

Vinir okkar í Myndarsögum gefa út nýjasta heftið sitt og standa fyrir útgáfuhófi í Nexus kl. 13:00 þann 11. júlí næstkomandi. Í þeirra eigin orðum:

Við erum að gefa út myndasögutímarit. Það er fyrir þig. Það er fyrir börnin þín. Það er fyrir ömmu þína og afa, það er fyrir alla.

Við ætlum að mætast á frægustu krossgötum sem sögur fara af. Krossgötum sem leiða þig rakleiðis frá Skeifunni og yfir í Álfheima. Nexus í Glæsibæ munu hýsa okkur.

Við bjóðum ykkur velkomin að gleðjast og fagna með okkur tilvist nýjasta afsprengis listrænna gjörða nokkurra af okkar hæfustu skapandi einstaklingum sem leggja lið sitt við bálkinn að þessu sinni og kynda upp myndasögubálið upp fyrir okkur öll þessa dagana. Með glóðheitum og brakandi ferskum myndasögum sem munu trylla hverja keilu bakvið lithimnu augna þinna.

Þónokkrir meðlimir ÍMS eru í blaðinu og hvetjum við alla sem geta til að mæta og styrkja þetta spennandi framtak.

Kastljós

Í hverjum mánuði viljum við taka fyrir höfund í félaginu og kynna fyrir lesendum. Listahöfundur mánaðarins er…

Ísold Davíðsdóttir

Hver ert þú?

Ég heiti Ísold Davíðsdóttir en listamanna nafnið mitt er aparass (ekki spurja mig afhverju).

Hvað hefurðu verið að semja myndasögur lengi?

Síðan ég var svona 7 ára. En ég byrjaði að birta þær á netinu um 2007 og svo gaf ég út mína fyrstu myndasögu 2012.

Áttu þér uppáhaldshöfunda?

Þeir höfundar sem hafa haft mest áhrif á mig eru Alessandro Barbucci, Don Rosa, Peter Madsen og Brian Lee O’Malley.

Hver myndirðu segja að væri þín sterkasta hlið í myndasögum?

Hmm… ég held að ég sé með mjög sérstæðan teiknistíl, sem höfðar til bæði barna og fullorðinna, og ég elska að leika mér með fjórða vegginn.

Hvað viltu læra að gera næst?

Það er allskonar myndlist sem mig hefur alltaf heillað mig og mig langar til að læra… eins og að gera vegglist eða húðflúr. En ég veit ekki hvort það sé í kortunum hjá mér. Líklega held ég mig bara við myndasögurnar og dýpka kunnáttu mína þar.

Hverskonar myndasögur myndirðu vilja sjá frá íslenskum höfundum?

Ég myndi elska að sjá myndasögu tímarit með framhaldssögu sem kemur út einusinni í mánuði!!!

Hvar getur fólk fundið myndasögurnar þínar?

Nýjasta sagan mín, Krummafótur, dettur í bókabúðir í haust. Annars má fylgja mér á insta, á @aparasscomix, til að fylgjast með listinni minni.

Fréttabréf Júní 2026

Komið sæl!

Endilega hafið samband ef þið hafið tilkynningar sem þið viljið deila með meðlimum félagsins, t.d. nýútgefnar myndasögur, nýjar vefmyndasögur eða ef þið eruð að leita að samstarfsfélögum að gerð nýrrar myndasögu.

Einnig minnum við á að meðlimum býðst að senda inn handrit og myndlist og fá ráðgjöf og rýni frá okkur. Við sinnum einni sendingu á mánuði og afgreiðum sendingar í þeirri röð sem þær berast okkur.

Myndasögusultur 10. og 30. júní

Að vanda eru myndasögusultur haldnar á Loft Hostel 10. og 30. júní næstkomandi. Við ætlum aðeins að bregða út af laginu með því að halda 10. júní hittinginn milli 19:00 og 22:00 og 30. júní milli 17:00 og 20:00. Við vonumst til að sjá fleiri gesti með því að bjóða fjölbreytni í mætingatímum.

Kíkið við og deilið því sem þið eruð að vinna að og fáið uppbyggilega gagnrýni. Eða komið bara að spjalla og krota eins og vanalega! Við hlökkum til að sjá ykkur.

Myndasöguhátíð Siglufjarðar tilkynnt

Myndasöguhátíð Siglufjarðar verður haldin í þriðja sinn 11.-13. september næstkomandi. Við hvetjum alla meðlimi ÍMS til að skrá sig sem fyrst og hlökkum til að sjá ykkur þar.

Kastljós

Í hverjum mánuði viljum við taka fyrir höfund í félaginu og kynna fyrir lesendum. Listahöfundur mánaðarins er…

Sólveig Eva Magnúsdóttir

Hver ert þú?

Sólveig Eva Magnúsdóttir - rithöfundur, myndhöfundur, leikkona og ein af stofnendum leikhópsins Spindrift. Ég skapa myndasögur fyrir blöð s.s. The Washington Post, The New Yorker, LA Times, Boston Globe, McSweeney's og fleiri, og er með tvær grafískar skáldsögur í vinnslu og útgáfuferli í Bandaríkjunum: Pretty Privilege um stéttaskiptingu Bandaríkjanna og grá svæði ofbeldis og Space Mama Piggy um móðurhlutverkið, skömm og kvíða.

Hvað hefurðu verið að semja myndasögur lengi?

Frá því ég var barn, en ég fór að fikta með myndasögupersónu, Space Mama Piggy, af alvöru árið 2017 sem eins konar tragic clown til að hlæja að og persónugera eigin meðvirkni og kvíða. Svo má segja að í Covid þegar leikarabransinn lokaði árum saman fór ég að byrja af alvöru að helga mér myndasöguformið sem útrás í staðinn.

Áttu þér uppáhaldshöfunda?

Ég elska samtölin og mannlega hegðun í bókum eftir Rutu Modan, t.d. er Exit Wounds alveg frábær. Hins vegar er Tove Jansson alltaf drottningin — ég vildi ég ætti kot og matarpening til að búa í náttúrunni og teikna hjartnæma kjána liðlangan daginn eins og hún.

Hver myndirðu segja að væri þín sterkasta hlið í myndasögum?

Fyrst og fremst örugglega bara að láta sjálfa mig hlæja, en ég reyni að skrifa einlægar sögur frá hjartanu sem gætu vonandi hlúað að sárindum eða veitt félagsskap fyrir erfiðar tilfinningar lesenda.

Hvað viltu læra að gera næst?

Ég er hæg og verð auðveldlega pirruð þegar ég teikna nákvæma þrívídd í mikilli nærmynd. Ég þarf að nenna að gera fleiri einfaldar tækniæfingar oftar til að verða hraðari og betri með svona basic undirstöðuatriði...!

Hverskonar myndasögur myndirðu vilja sjá frá íslenskum höfundum?

Ég dáist að allri gróskunni hér og fjölbreytni hennar, húmor og hæfileikum. Sjálfri finnst mér að ríkið þurfi að viðurkenna menningarlegt gildi grafískra myndasagna og fjármagna longform vönduð metnaðarfull verkefni svo við getum séð fleiri svoleiðis bækur á hillunum og þjóðin fái að læra og njóta alls sem býr í þessu listformi. Ég elska sjálf höfunda sem skrifar langar, flóknar, einlægar, journalistic sögur um erfið mannleg samskipti eða pólitísk viðfangsefni fyrir fullorðna lesendur, og mér finnst ferleg skömm að menningarpésarnir okkar séu ekki búnir að fatta verðgildi formsins þegar kemur að því að gera flókin og þung viðfangsefni aðgengileg lesendum á öllum aldri.

Hvar getur fólk fundið myndasögurnar þínar?

Ég er á @solaevadraws á instagram og á www.solaevadraws.com má finna ýmsar greinar, verk og yfirlit yfir bækurnar mínar. Næsta ráðstefna sem er bókuð hjá mér verður Thought Bubble Festival í Yorkshire í haust. Svo ættu að vera eintök eftir af Pancake Cravings, Four Family Stories eða Neistar í Pennanum, Skáldu, Nexus Glæsibæ, Stúdentakjallaranum, Reykjavík Books and Chocolate, Gömlu bókabúðinni og víðar.

Fréttabréf Maí 2026

Komið sæl og gleðilegt sumar!

Endilega hafið samband ef þið hafið tilkynningar sem þið viljið deila með meðlimum félagsins, t.d. nýútgefnar myndasögur, nýjar vefmyndasögur eða ef þið eruð að leita að samstarfsfélögum að gerð nýrrar myndasögu.

Einnig minnum við á að meðlimum býðst að senda inn handrit og myndlist og fá ráðgjöf og rýni frá okkur. Við sinnum einni sendingu á mánuði og afgreiðum sendingar í þeirri röð sem þær berast okkur.

Myndasögusultur 13. og 26. maí

Að vanda eru myndasögusultur haldnar á Loft Hostel 13. og 26. maí næstkomandi, milli 17:00 og 20:00. Kíkið við og deilið því sem þið eruð að vinna að og fáið uppbyggilega gagnrýni. Eða komið bara að spjalla og krota eins og vanalega! Við hlökkum til að sjá ykkur.

Dagur ókeypis myndasögunnar 2. maí

Ókeypis myndasögudagurinn er haldinn hátíðlegur laugardaginn 2. Maí í Nexus Glæsibæ. Þar verða amk. Tvö fríblöð til, stútfull af sögum eftir íslenska höfunda. Við vonumst til að sjá sem flest ykkar á staðnum.

Ef þið sjáið ykkur ekki fært að mæta í Glæsibæ þá mælum við með að þið kíkið á bókasafn og takið ykkur eitthvað skemmtilegt að láni. Berum út fagnaðarerindi myndasagna hvar sem við getum!

Kríukeppnin hefst

ÍMS kynnir: Kríukeppnina, Íslandsmót í myndasögugerð fyrir börn og unglinga á aldrinum 8-17 ára. Keppnin hefst formlega 2. maí (ókeypis myndasögudaginn) og rennur skilafrestur út um miðnætti 28. ágúst (alþjóðlegan dag myndasögunnar). Þátttakendur hafa sumarið til að semja, teikna, lita, letra og senda myndasöguna sína inn. Sérstök dómnefnd rýnir svo í verkin og sigurvegarar verða svo tilkynntir á sérstakri athöfn síðar á árinu.

Frekari upplýsinga má vitja á heimasíðu ÍMS: ims.is/kria

ÍMS kynnir: Myndasögumaí

Í maí-mánuði mun ÍMS stýra instagram-leik í anda Inktober:

Reglurnar eru einfaldar: Semjið 1-4. ramma myndasögu innblásna af þema hvers dags. Deilið sögunum á félagsmiðlum ásamt stikkorðinu #myndasogumai26.

Njótið áskorunarinnar. Ekki reyna að uppfylla öll þemun. Þetta á fyrst og fremst að vera gaman!

Kastljós

Í hverjum mánuði viljum við taka fyrir höfund í félaginu og kynna fyrir lesendum. Listahöfundur mánaðarins er…

Einar Valur Másson

Hver ert þú?

Það þekkja mig flestir hér en ég er myndasöguhöfundur, ritstjóri, stofnmeðlimur og núverandi formaður ÍMS. Ég þýddi og endurletraði Myndasögur og máttur þeirra (Understanding Comics) sem ÍMS gaf svo út árið 2022. Ég er líka fyrsti íslenski heimsmeistarinn í myndasögum!

Hvað hefurðu verið að semja myndasögur lengi?

Frá því ég man eftir mér. Ég held að mamma og pabbi eigi ennþá til myndasögur sem ég samdi þegar ég var u.þ.b. fjögurra-fimm ára, byggðar á He-Man köllunum mínum. Ég valdi samt ekki myndlistaferilinn fyrr en ég var orðinn 25 ára og hef samið myndasögur af alvöru frá því um 2012.

Áttu þér uppáhaldshöfunda?

Evrópsku meistararnir mótuðu smekk minn þegar ég var ungur: Tome & Janry, Morris & Goscinny og Hergé. Í dag hallast ég að breskum og norður-amerískum höfundum á borð við Grant Morrison, Erica Henderson, John Allison, Kyle Starks og Stan Sakai.

Hver myndirðu segja að væri þín sterkasta hlið í myndasögum?

Úff! Þegar stórt er spurt… ætli ég sé ekki stoltastur af umhverfunum mínum? Ég legg alltaf ríka áherslu á að umhverfin séu svolítið lifandi í myndasögunum mínum.

Hvað viltu læra að gera næst?

Ég vil læra að semja lengri sögur. Ég er mjög flinkur í að semja stuttar sögur (ég legg mikla áherslu á að koma mér að efninu í myndasögum) en ég held ég sé tilbúinn að takast á við stærra og metnaðarfullra verk.

Hverskonar sögur myndirðu vilja sjá frá íslenskum höfundum?

Ætli ég vilji ekki sjá vandaðri og metnaðarfyllri sögur. Sögur sem tjá skoðun og viðhorf höfundarins, sem geta haldið í við evrópska frændur okkar hvað varðar myndlistina. Bæði meira „flash“ og meira „substance“ eins og segir á góðri íslensku. Ég held það sé alveg að bresta á.

Hvar getur fólk fundið myndasögurnar þínar?

Það er ansi langt síðan ég birti sögurnar mínar annars staðar en í safnblöðum eins og Myndarsögum. Það er ennþá eitthvað eftir mig inni á instagram undir @emassonart og svo má fletta gegnum fimm ára afrakstur samstarfs míns við Jono Duffy á GayIceland.is. Annars lofa ég að setja eitthvað upp á heimasíðunni minni: emassonart.com

Fréttabréf Apríl 2026

Komið sæl,

Endilega hafið samband ef þið hafið tilkynningar sem þið viljið deila með meðlimum félagsins, t.d. nýútgefnar myndasögur, nýjar vefmyndasögur eða ef þið eruð að leita að samstarfsfélögum að gerð nýrrar myndasögu.

Einnig minnum við á að meðlimum býðst að senda inn handrit og myndlist og fá ráðgjöf og rýni frá okkur. Við sinnum einni sendingu á mánuði og afgreiðum sendingar í þeirri röð sem þær berast okkur.

Myndasögusultur 8. og 28. apríl

Að vanda eru myndasögusultur haldnar á Loft Hostel 8. og 28. apríl næstkomandi, milli 17:00 og 20:00. Kíkið við og deilið því sem þið eruð að vinna að og fáið uppbyggilega gagnrýni. Eða komið bara að spjalla og krota að vanda! Við hlökkum til að sjá ykkur.

Dagur ókeypis myndasögunnar 2. maí

Dagur ókeypis myndasögunnar (Free Comic Book Day) er rétt handan við hornið og vinir okkar í Nexus fagna honum að vanda með stærðarinnar viðburði laugardaginn 2. maí í Glæsibæ. Ókeipiss, ókeypis myndasögusafnið í ritstjórn og útgáfu Hugleiks Dagsson, snýr einnig aftur eftir tíu ára langan dvala. Þetta er skemmtilegt tækifæri til að deila myndasögum með almenningi. Í þeirra orðum:

NEXUS OG ÓKEIPISS KYNNA MYNDASÖGUÁSKORUN 2026

Nýtt tölublað Ókeipiss kemur út 2.maí! Ókeipiss er ókeypis myndasögublað sem kemur út á Ókeypismyndasögudeginum ( http://www.freecomicbookday.com/ ). Við hvetjum alla til að taka þátt og senda okkur efni!

Reglurnar í ár eru þessar:

  • a) Að minnsta kosti ein síða. Í mesta lagi tvær síður.
  • b) Má vera í lit og má líka vera ekki í lit.
  • c) Má vera eftir einn eða fleiri. höfundar og teiknarar sameinist!
  • d) Ekki enda söguna á "framhald síðar". Sagan verður að standa ein og sér.
  • z) blaðið verður prentað í stærðinni B5 (176mm × 250mm). En A4 sleppur líka alveg.

Bestu sögurnar verða birtar í blaðinu.

Sendið sögurnar í góðri upplausn á okeipiss@gmail.com

Skilafrestur er 15. apríl. Fyrir miðnætti.

Vertu með þarna þú!

Ókei bæ!

Vantar slatta í meðlimaskrána

Enn eru þónokkrir sem eiga eftir að senda inn upplýsingarnar sínar fyrir meðlimaskrá ÍMS. Við hvetjum virka meðlimi til að senda okkur mynd af sér, mynd af myndlist, stutta ferilslýsingu og hlekk á portfolio-ið sitt sem fyrst svo við getum komið skránni í loftið.

Kastljós

Í hverjum mánuði viljum við taka fyrir höfund í félaginu og kynna fyrir lesendum. Listahöfundur mánaðarins er…

Hjalti Gunnar Tryggvason

Hver ert þú?

Ég heiti Hjalti Gunnar Tryggvason. Ég lít á mig sem allt-muligt menni þegar kemur að myndlist. Ég er frændi, ég er vinur og ég er kjáni.

Hvað hefurðu verið að semja myndasögur lengi?

Ætli það hafi ekki byrjað af einhverri alvöru í háskóla. Margar stafrænar sögur sem voru nýttar í hin ýmsu verkefni. Ég hef verið að leika mér að því ansi lengi. Stærðfræðibækur úr 7.bekk er t.d. fylltar af 1-3 ramma sögum innblásnum af Gretti.

Áttu þér uppáhaldshöfunda?

Ég á svo erfitt með að gera einn að uppáhalds. Það eru svo margir sem ég held upp á, eins og Tim Probert, Jordi Lafebre, Scottie Young, Jorge Corona, Matías Bergara og svo margir fleiri.

Hver myndirðu segja að væri þín sterkasta hlið í myndasögum?

Kjölurinn hugsa ég. Það er hægt að hamra eitthvað almennilega með þeirri hlið.

Hvað viltu læra að gera næst?

Ég vil leggja áherslu á að bæta mig í skrifum. Það er hlið sem ég hef ekki sinnt nóg í lengri tíma og finn hvað það heldur aftur af mér núna.

Hvar getur fólk fundið myndasögurnar þínar?

Ég setti þær flestar á twitter á sínum tíma en er núna búinn að loka fyrir það eftir að það varð að X. Markmiðið er að setja upp heimasíðu og þá myndi ég eflaust setja þær þangað.

Fréttabréf Mars 2026

Komið sæl,

Endilega hafið samband ef þið hafið tilkynningar sem þið viljið deila með meðlimum félagsins, t.d. nýútgefnar myndasögur, nýjar vefmyndasögur eða ef þið eruð að leita að samstarfsfélögum að gerð nýrrar myndasögu.

Einnig minnum við á að meðlimum býðst að senda inn handrit og myndlist og fá ráðgjöf og rýni frá okkur. Við sinnum einni sendingu á mánuði og afgreiðum sendingar í þeirri röð sem þær berast okkur.

Myndasögusultur 11. og 24. mars

Að vanda eru myndasögusultur haldnar á Loft Hostel 11. og 24. febrúar næstkomandi, milli 17:00 og 20:00. Kíkið við og deilið því sem þið eruð að vinna að og fáið uppbyggilega gagnrýni. Eða komið bara að spjalla og krota að vanda! Við hlökkum til að sjá ykkur.

Heimasíða ÍMS er komin á loft

ÍMS á nýja heimasíðu! Kíkið á hana hér: https://www.ims.is/

Heimasíðan okkar er ennþá svolítið hrá en er hægt og rólega að taka á sig fallegri mynd. Við hvetjum meðlimi okkar til að senda inn myndlist sem mun svo róterast efst á heimasíðunni.

Hér er snið fyrir fólk til að fylgja. Takið eftir að við munum bæta „ÍSLENSKA MYNDASÖGU- SAMFÉLAGIГ við myndina, öðru hvoru megin eftir því sem hentar hverri mynd, ásamt nafni höfundar.

Meðlimaskrá í bígerð

Meðlimaskrá ÍMS er farin að taka á sig mynd og vonumst við til að hún komist á flug um næstu mánaðamót. Enn vantar talsvert af innsendu efni frá virkum meðlimum okkar og viljum við hvetja ykkur til að leiðrétta það.

Við ítrekum að meðlimir senda eftirfarandi atriði inn á islmynsam@gmail.com:

  • Mynd af þér (helst ljósmynd en má líka vera teiknuð mynd)
  • Stutt lýsing á þér sem listahöfundi (menntun, helstu verk, innblástur, etc.), uþb. 50 orð
  • Mynd sem endurspeglar myndlistina þína vel
  • Hlekkur á portfolio-síðu (má vera heimasíða, instagram, Cara eða hvað sem þér hentar…)
  • Tölvupóstur þar sem má hafa samband við þig varðandi listina þína
  • Heimilisfang (þetta birtist ekki á vefnum, þetta er svo við getum komið nýja félagsskírteininu þínu til þín)

Hér er mynd af skránni (í vinnslu) til að sjá sirka hvernig hún mun líta út:

Meðlimagjöld sent

Við höfum sent 5.000kr. árgjald í heimabanka allra skráðra meðlima ÍMS. Þetta er árlegt gjald sem hjálpar okkur að bjóða meðlimum upp á endurgjöf frá fagfólki á verk í vinnslu, vinnustofur og fræðsluskot um myndasögugerð, afslætti hjá völdum verslunum og þjónustum, borgar viðhaldskostnað á heimasíðu ÍMS, og alls konar annað skemmtilegt.

Kastljós

Í hverjum mánuði viljum við taka fyrir höfund í félaginu og kynna fyrir lesendum. Listahöfundur mánaðarins er…

Kris Halla Helga

Hver ert þú?

Ég heiti Kris Helga, skynsegin listamaður frá Hafnarfirði. Ég er að klára teikninám í Myndlistaskóla Reykjavíkur.

Hvað hefurðu verið að semja myndasögur lengi?

Um 4 ár núna.

Áttu þér uppáhaldshöfunda?

Junji Ito er í miklu uppáhaldi hjá mér og Brian K Vaughan er snilldar höfundur, elska sögunar hans.

Hver myndirðu segja að væri þín sterkasta hlið í myndasögum?

Mín sterkasta hlið er flæði milli ramma.

Hvað viltu læra að gera næst?

Letrun.

Áttu þér uppháldsmiðil til að vinna í?

Ég er mikið í mixed media en gríp oftast í vatnslitina.

Hvar getur fólk fundið myndasögurnar þínar?

Ég var að starta myndasögu-insta þar sem ég pósta vikulegum 4-panel slice-of-life myndasögum og öðrum myndasöguverkefnum https://www.instagram.com/kris.comics/

© Íslenska myndasögusamfélagið, 2026